- Félagið
- Fótbolti
- Körfubolti
- Sund
- Frjálsar
- Skíði
- Júdó
- Bogfimi
- Badminton
5 leikmenn eru inni á leikvelli í hverju liði í senn. Leiktími er 2 x 8 mínútur, hálfleikur er í 1-2 mínútur.
Upphafsspyrnur og útspörk:
Ekki má skora úr innkasti, upphafsspyrnu eða beint úr útsparki (þegar markmaður heldur á boltanum og sparkar út) jafnvel þó markmaður verji hann inn.
Þegar markmaður byrjar með boltann við markspyrnu á andstæðingurinn að bakka aftur fyrir miðju.
Sending til baka:
Markmaður MÁ alltaf taka bolta með höndum innan vítateigs ef sent er til baka á hann.
Aukaspyrnur:
Allar aukaspyrnur eru beinar og má skora beint úr þeim.
6 metrar í vegg.
Innspark/Knattrak
Ef boltinn fer út fyrir hliðarlínu skal taka innspark eða knattrak.
Innspark: Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með sendingu. Óheimilt er að lyfta bolta hærra en í hnéhæð með innsparki. Óheimilt er að skora beint úr innsparki.
Knattrak: Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með því að rekja boltann af stað frá hliðarlínu.
Vítaspyrnur:
Eru teknar á vítateigslínu fyrir miðju marki.
Annað:
Engin úrslit verða skráð með meira en 3ja marka mun þó leikir vinnist stærra. (7-0 sigur er skráður 3-0 og 7-1 sigur skráður 4-1 og svo fr.v.)
Skoruð mörk skipta ekki máli í lokin heldur markamunur (munur á skoruðum mörkum og fengnum á sig).
Ef lið verða jöfn að stigum í lokin ræður innbyrðis viðureign, eftir það markamunur (m.v. +3 regluna). Ef enn er jafnt verður varpað hlutkesti.
Í úrslitaleikjum um 1. sæti er fimm mínútu framlenging og ef það er jafnt að henni lokinni er uppkast.
Í úrslitaleikjum um 3. sæti eða neðar er uppkast strax að leik loknum.
Séu athugasemdir við skráð úrslit leiks skal tilkynna mótsstjórn (s:867-3799) um það samdægurs, í síðasta lagi á þjálfara/liðstjóra fundi um kvöldið sama dag.